Könnun

Var Dúllaheimur betri?

Allt ađ gerast!

17. maí 2006 klukkan 07:10
Ætli maður skelli ekki bara einu bloggi, orðið langt síðan síðast!

Það er voðalega fátt að frétta af mér, sumarfríið er komið svo maður er eitthvað byrjaður að huga að því að fá sér vinnu, vonandi dettur inn ein vel borguð á næstu dögum Hlæjandi aldrei að vita!

Þó það sé fátt að frétta er miklu meira en nóg að gera eins og endranær, þar af leiðandi hef ég ekki verið ýkja duglegur með bloggið!  En það sem er helst á döfinni eru Gospeltónleikar Gospelkórs Vestfjarða og hljómsveitarinnar Apollo, sem verða annars vegar mánudaginn 22. maí í Víkurbæ og hins vegar þriðjudaginn 23. maí í Alþýðuhúsinu (bíóinu) á Ísafirði - hörkutónleikar með fjölbreyttu lagavali sem enginn áhugamaður um tónlist ætti að láta fram hjá sér fara!  Miklar æfingar og útpældar útsetningar hafa einkennt síðustu daga svo þetta ættu að verða þrusutónleikar Glottandi Auglýsingar ættu að koma fljótlega...

Annars er margt meira að gerast, mikið um að vera í klassíkini í tónlistarskólanum, tónleikar og próf o.s.frv. svo maður má ekki einbeita sér síður að því!  Svo er Apollo að fara að spila á torginu á föstudaginn á fjölskyldufagnaði Í-listans - hvet alla til að mæta og fá sér pulsu og kosningaloforð beint í æð.

Ekki má svo gleyma feitu leiklistar-reunion partýi á helginni, það verður  líklegast svaaaaaakalegt!  Langt síðan maður hefur komist í leiklistargírinn, eflaust verða einhver lög úr leikritinu leikin á 4ra strengja kassagítar og biblíulög í þokkabót Glottandi

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra, afsakið biðina á þessu bloggi!

Með kveðju...

Halldór Smárason

Aldeilis áhugaverđar athugasemdir!

03. maí 2006 klukkan 05:44
Heil og sæl!

Ég get nú ekki sagt annað en að síðasta blogg hafi einkennst af einkennilegum og löngum athugasemdum...... Ætli "commentið" hennar Maju hafi ekki verið lengra en bloggið sjálft!  En það er ekkert til að kvarta undan, keep on commenting in the free world Svalur

Annars hefur verið í nógu að snúast hjá mér, eins og stundum áður!  Var að spila meira og minna um helgina... Reyndar var fyrsta spileríið á fimmtudaginn á heiðringu Ruthar, bæði um daginn og kvöldið, það var bara stuð á gömlu!  Síðan var ég fenginn til að dinnerast á hótelinu á sunnudagskvöldið.  Á mánudaginn, 1. maí, lenti ég hins vegar í smá bobba, eða kannski aðeins meira en smá - ég átti að spila á tveimur stöðum í einu.  Það er hægara sagt en gert, en án þess að þurfa að klóna mig reddaðist það alveg, enda hef ég bráðgott tímaskyn .... Þögull sem gröfin Fyrst kom gospelkórinn fram út í vík og svo Apollo svona hálftíma síðar á Ísafirði, en allt er gott sem endar vel og þetta gerði það sannarlega Brosandi

Í morgun (þriðjudag) var síðan fyrsta lokaprófið, en það var STÆ 203, og þrátt fyrir að hafa ekki lært mikið þá gekk mér bara vel, miklu betur en ég þorði að vona.  Enda segir þetta sig allt sjálft Glottandi

Ég nenni ekki að hafa þetta lengra í þetta skiptið, haldiði áfram að commenta!

Þess má geta að ég mun líklega koma til með að skella inn einum og einum línum hérna þegar ég hef tíma og dugnað til að byrja, það ætti ekki að vera of langt í það!

Með kveðju ...
Halldór Smárason

Betri viđtökur en búast mátti viđ

27. apríl 2006 klukkan 03:35
Sælt veri fólkið!

Ég verð að viðurkenna að þetta eru betri viðtökur en ég bjóst við Brosandi Takk fyrir að nenna að kíkja!

Ég býst við því að síðan fari svona frekar hægt af stað, það týnist inn eitt og eitt í einu, þ.e.a.s. nýjar kannanir, fleiri myndir og aðrar undirsíður koma með kalda vatninu.

En ég fór að spá í eitt... Það er víst komin einhver pressa á mann að byrja aftur með línur?  Ég er ekki viss hvort það sé málið fyrir mig andlega séð þar sem ég fékk taugaáfall af og til þegar mig vantaði línur á gömlu síðunni!  En pælingin er hvort lína vikunnar myndi virka, og bæta um leið geðheilsu mína Brosandi Skelli inn könnun hér til vinstri!

Með kveðju...
Halldór Smárason

Aftur byrjađur ađ blogga

25. apríl 2006 klukkan 22:52
Góðan daginn!

Þegar ég hætti með síðasta blogg á Dúllaheimi, þá bjóst ég nú ekki við með að byrja með annað svona stuttu seinna.... þó það sé nú orðið dálítið langt síðan!

En þetta er bara gaman, prufa nýtt blogg, líka einfalt, þægilegt og flott kerfi hérna á bloggar.is. Spurningin er bara hvort ég mun svo koma til með að nenna að blogga eitthvað, ætla allavega að gera heiðarlega tilraun til þess Hlæjandi

Ég ætla ekki að hafa þetta langt í þetta skiptið, en endilega verið dugleg við að kommenta svo ég nenni að halda mér við efnið!

Kveð að sinni...
Halldór Smárason

Auglýsing

Gagnasafn

Leit